Icelandic

Í samræmi við Alvaldið

"Sá, sem fylgir sanneðli sínu, hefur taum á tungu sinni. Ofsaveður helzt ekki til næsta dags, og hellirigning ekki allan daginn. Hvorttveggja er af völdum himins og jarðar. Himinn og jörð eru hvikul í starfi sínu, en maðurinn miklu fremur. Sá sem er í samræmi við Alvaldið í verkinu, mun sameinast því. Sá sem leggur stund á dyggðina, sameinast henni, en sá, sem lifir í löstum, sameinast þeim. Þeir, sem eru í samræmi við Alvaldið, munu hljóta þá heill, að Alvaldið taki sér bústað hjá þeim. Þeir, sem eru á vegi dyggðarinnar, hljóta þá heill, að dyggðin tekur sér bústað hjá þeim. En þeir sem eru á lastavegi, munu hljóta fyllingu lastanna. Engum er treyst, nema hann sýni traust."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1