Icelandic
Varað við ófriði
"Sá, sem vill aðstoða þjóðhöfðingjann á vegum Alvaldsins, heldur uppi valdi sínu án þess að gríða til vopna. Aðferð hans ber ríkulegan ávöxt. Þar sem herlið hefur slegið landtjöldum, vaxa þyrnar og þislar. Af herferðum leiðir hallæri. Góður hermaður vinnur sigur, en nemur þar staðar og kúgar ekki. Hann berst, en stærir sig ekki af því og hrósar ekki happi. Hann berst því aðeins, að brúna nauðsyn beri til. Hann berst, er valdagirni er honum fjarri. Þegar styrkur fullorðinsáranna er fenginn, fara ellimörkin að koma í ljós. Þetta er ósamræmi við Alvaldið og það, sem Alvaldinu er andstætt, er brátt að þrotum komið."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1