Icelandic
Aftur til upphafsins
"Þegar maður hefir tæmt sig af öllu, mun friðurinn mikli koma yfir hann. Allir hlutir koma fram í tilvistina, og menn sjá þá hverfa aftur til upphafsins. Að hverfa aftur til upphafsins er friðurinn; það er að hafa náð takmarki tilvistar sinnar. Að ná þessu er að öðlast eilífðina. Sá, sem finnur til eilífðarinnar, nefnist vitur. Sá, sem skynjar ekki eilífðina, veitir ástríðum ráðrúm og verður fyrir ógæfu. Að finna til eilífðarinnar víkkar sálina og lyftir henni. Víðsýnn andi hefur samúð með öllu. Í samúðinni finnst konungdómurinn, í konungdóminum himinninn, og himninum Alvaldið. Sá, sem dvelur með Alvaldinu, líður ekki undir lok; þó að líkaminn leysist sundur, er engin hætta á ferðum."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1