Icelandic
Hið órannsakanlega upphaf
"Fylling dyggðarinnar veitir Alvaldið, hinn sanni veruleiki, hið ósnertanlega, hið órannsakanlega. Órannsakanlegt, ósnertanlegt, og geymir þó fyrirmyndir alls, sem er. Ósnertanlegt, órannsakanlegt, og geymir þó allan sannan veruleik. Djúpt og myrkt, en hið sanna verulega, sem hefur óbifanlega festu til að bera og aldrei bregzt. Nafn þess er ævarandi. Allir hlutir koma frá því með fegurð sína. Hvernig veit ég, að það er upphaf alls? Fyrir Alvaldið."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1