Icelandic
Ummyndanir Alvaldsins
"Í fyrstu var Alvaldið eitt; hið Eina kom síðan í ljós í Tvennu; Tvennt birtist í Þrennu, sem varð upphaf alls. Allir hlutir láta dimmuna að baki og koma fram til að faðma ljósið, en andardáttur hins ósýnilega samræmir þá. Mönnum er ekki um að vera munaðarleysingjar, smámenni, eða sem hálfsmíðaðir vagnar, en konungar og stórmenni nefna sig þannig. Því að sumir hlutir vaxa á því að minnka, en aðrir minnka á því að vaxa. Þessi kenning annarra er einnig mín. Þeir, sem fara með ofríki og harðneskju, hljóta ekki eðlilegan dauðdaga. Á þessu vil ég reisa kenningu mína."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1