Icelandic

Upphafið sem móðir

"Það, sem er upphaf alls, má telja móður þess. Þegar menn þekkja móðurina, vita þeir, hvers vænta má af börnunum. Hver, sem þekkir móðurina og fetar eins og barn í fótspor hennar, hefur ekkert að óttast, þótt líkaminn farist. Lokaðu munni þínum, láttu aftur augun og byrgðu eyrun; þá muntu verða áhyggjulaus alla ævi. En ef þú er opinmynntur og sífellt önnu kafinn, muntu aldrei verða óhultur. Sá, er skarpskyggn, sem hyggur að smáu; að haldast hógvær og blíður veitir sannan styrkleik. Fylgdu ljósinu og láttu það vísa þér veginn heim, þá mun eyðing líkamans ekki verða þér að tjóni. Það er að íklæðast eilífðinni."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1