Icelandic

Vöxtur dyggðarinnar

"Það, sem gróðursett er á réttan hátt, verður ekki rifið upp; það verður aldrei á braut borið sem vel er varðveitt. Það vekur virðingu niðjanna. Sá, sem eflir Alvaldið í sjálfum sér, gróðursetur dyggðina. Sá, sem eflir það í ætt sinni, lífgar fjölmarga frjóanga dyggðarinnar. Sá, sem eflir það í byggðarlaginu sínu, veitir dyggðinni vöxt. Sá, sem eflir það í ríkinu, lætur hana blómgast. Sá, sem eflir það í heiminum, lætur limu hennar breiðast um allt. Við samanburð sér maður þannig áhrifin á sjálfan sig, á ættina, byggðarlagið, ríkið og heiminn. Hvernig veit ég, að þessi áhrif eru vís? Með þessu móti."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1