Icelandic
Hið dásamlega samræmi
"Sá, sem hefur fyllingu dyggðarinnar, er eins og lítið barn. Eiturkvikindi munu ekki stinga það, villidýr ekki ráðast á það, og ránfuglar ekki hremma það. Bein barnsins eru lin og sinarnar mjúkar, en þó eru átök þess föst. Þótt það þekki ekki mun á karli og konu, kemur eðli þess greinilega í ljós, og það sýnir fullan líkamsþrótt. Þótt það hríni allan daginn, finnur það ekki til hæsi. Þannig er samræmið í eðlisfari þess. Sá, sem öðlast þetta samræmi, sér hið Óumbreytanlega. Að sjá hið Óumbreytanlega veitir vizku. Að lifa hóflaust veldur ógæfu. Þar, sem ákafinn ofbýður lífsaflinu, er styrkurinn blekking. Styrkurinn hefur í för með sér elli. Menn eru fráhverfir Alvaldinu. Það, sem Alvaldinu er fráhverft, er brátt að þrotum komið."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1