Icelandic
Stjórn án hygginda
"Fornmenn, sem gengu á vegum Alvaldsins, reyndu ekki að örva hyggindi fólksins, heldur leituðust þeir við að glæða hjá því einfeldni. Of mikil huggindi gera mönnum erfitt að stjórna þjóðinni. Sá, sem reynir að stjórna með hyggindum, verður harðstjóri, en hinn, sem stjórnar án hyggindanna, verður til blessunar. Sá, sem skilur þetta, hefur fyrirmynd að starfi sínu. Það er hin dásamlega dyggð, að missa aldrei sjónar á þessari fyrirmynd. Djúp og víðtæk er þessi dásamlega dyggð og ólík breytni annarra. En hún mun semeina alla."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1