Icelandic
Þrír kostgripir
"Allur heimur segir, að kenning mín um Alvaldið sé mikil, en óvenjuleg. Einmitt vegna mikilleika síns virðist hún óvenjuleg. Væri hún lík kenningum annarra, mundi lítilvægi hennar fyrir löngu augljóst orðið. Ég hef þrjá kostgripi, sem ég met mikils og gæti vandlega. Hinn fyrsti er hógværð, annar er sparsemi og hinn þriðji er lítillæti. Með hógværð get ég verið djarfur. Með sparsemi get ég verið örlátur. Með lítillæti get ég hlotið hinn æðsta heiður. En nú á tímum hirða menn ekki um hógværð og eru fullir frekju; þeir hirða ekki um sprsemi og eru allir í eyðslusemi; þeir eru horfnir frá lítillæti og keppa um tignarsæti. En þetta er vegur dauðans. Hógværð er viss um að vinna sigur, jafnvel í orustu, og lætur ekki undan síga. Himinninn veitir þeim hógværð, sem hann vill bjarga."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1