Icelandic
Fyrirheit sjálfsagans
"Þegar kröftum anda og líkama er beitt saman, sundrast þeir ekki. Með því að anda á réttan hátt og veita geðmýktinni ráðrúm, er unnt að verða eins og lítið barn. Með því að hreinsa sálina og dýpka hugann, er unnt að verða flekklaus. Jafnframt því að elska þjóðina og stjórna henni, er unnt að vera laus við strit. Hlið himinsins opnast og lokast, og maður getur verið eins og fugl í hreiðri. Það er hægt að líta skærum augum gegnum eðli allra hluta, án þess að láta hyggindin vísa sér veg. Að glæða og ala önn fyrir, að framleiða en safna ekki auði, að starfa en heimta ekki, að mega sín mikils án þess að láta til sín taka — það er æðsta dyggðin."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1