Icelandic

Hinn fyrsti leyndrdómur

"Í upphafi var leyndardómurinn, áður en himinn og jörð urðu til, fullkominn, formlaus — í hátíðlegri kyrrð. Hann varð til af sjálfum sér, óumbreytanlegur. Hann má nefna móður allra hluta. Ég veit ekki nafn hans, en kalla hann Alvaldið. Ef ég á að lýsa því frekar, nefni ég það óendanlegt. Óendanlegt rennur það í stöðugum straumi. Það streymir burt og fjarlægist, og úr fjarlægðinni nálgast það aftur. Alvaldið, himinninn, jörðin og konungurinn eru nefnd máttavöldin. Þau eru fjögur, og vitur konungur er eitt þeirra. Lögmál mannsins er af jörðinni; lögmál jarðarinnar er af himni; lögmál himinsins er frá Alvaldinu. Alvaldið hefur sitt lögmál í sjálfu sér."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1
Loading…
Loading the web debug toolbar…
Attempt #