Icelandic
Hin rétta aðferð
"Góður göngumaður þyrlar ekki upp ryki. Góður ræðumaður segir ekkert, sem verður að fundið. Góður reikn- ingsmaður þarf enga töflur. Góður vörður þarf hvorki lása né slag- branda, en enginn getur opnað, þar sem hann lokar. Sá, sem bindur bezt, þarf engra reipa né hnúta við, en enginn getur leyst það, sem hann bindur. Á sama hátt er vitur maður jafnan fær um að liðsinna félögum sínum, og hann misvirðir engan. Honum er jafnan sýnt um að gæta hlutanna, og lítisvirðir ekkert. Hann er sem hjúpað ljós fyrir alla. Góðir menn leiðbeina því öðrum og betra þá, en vondir menn eru hið ríkulega viðfangsefni. Sá, sem heiðrar ekki meistara sinn, og hinn, sem elskar ekki viðfangsefni sitt, eru báðir blindir, þótt þeir séu kallaðir hyggnir. Þetta er leyndardómur, undra- verður og áríðandi."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1