Icelandic

Einfeldni — dyggð eilífaðarinnar

"Sá, er sameinar karlmennsku og kvenlega blíðu, mun verða eins og breitt fljót, sem allar lindir renna til. Þannig mun hann öðlast hina eilífu dyggð. Hann mun verða sem lítið barn. Sá, sem veit, hve ljóminn gengur í augun, en heldur sig þó í skugganum, verður fyrirmynd allra að hógværð. Dyggðin eilífa heldur hlífiskildi yfir honum. Hann mun snúa aftur til upprunalegrar einfeldni. Sá, sem er auðmjúkur í upphefðinni, mun verða eins og víður dalur og tekur við fyllingu hinnar eilífu dyggðar. Hann mun hverfa aftur til hins einfalda frumeðlis. Upprunaleg einfeldni er eins og efniviður, sem ótal ker eru smíðuð úr. Sá, sem hefur hana, verður leiðtogi allra; hann er víðsýnn og beitir ekki ofbeldi."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1
Loading…
Loading the web debug toolbar…
Attempt #