Icelandic

Lögmál stöðugleikans

"Frá því í fyrndinni hefur hið Eina búið í heiðríkju himinsins, festu jarðarinnar, andlegu eðli sálnanna, straumvötnum dalanna, lífi alls heimsins, stjórn konunga og þjóðhöfðingja. Allt þetta er sprottið af hinu Eina. Án heiðríkju mundi himinninn glatast. Án festu mundi jörðin sundrast. Án andlegs eðlis væru sálirnar máttvana. Vatnslausir mundu dalirnir skrælna. Ef lífsaflið þryri, mundu allar skepnur deyja. Ef konungar og þjóðhöfðingjar misstu álit sitt og tign, yrði þeim steypt af stóli. Þannig hvílir tign á því, sem lítils er virt, og það, sem gnæfir hátt, hvílir á hinu lægra. Þjóðhöfðingjar og konungar nefna sig þess vegna "munaðarleysingja", "smámenni" og "hálfsmíðaða vagna". Er þetta ekki játning þess, að tign þeirra hvíli á því, að þeir hreykja sér ekki? Hálfsmíðaður vagn er vissulega ekki fullkominn. Þeim er ekki meira í mun að ljóma sem gimsteinn, en að vera eins og vanalegur malarhnöllungur."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1
Loading…
Loading the web debug toolbar…
Attempt #