Icelandic
Viðhald alls
"Alvaldið framleiðir alla hluti, og aðfall starfsemi þess heldur þeim við. Þeir lagast samkvæmt eðli sínu og fullkomnast eftir því, sem skilyrði eru til. Þess vegna er Alvaldið og starfsemi þess án undartekningar í heiðri haft. En það er ekki í heiðri haft vegna neinnar skipunar, heldur ósjálfrátt og fúslega. Því að Alvaldið framleiðir alla hluti og heldur þeim við, veitir þeim vöxt og þroska, fullkomnar þá og varðveitir. Það farmleiðir en krefst ekki eignar, starfar en hrósar sér ekki, þroskar allt en er ekki ráðríkt. Þannig er hið dularfulla starf þess."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1