Icelandic
Stórt og lítið ríki
"Stórt ríki myndast á sama hátt og fljót, sem vex, þegar það lækkar. Þannig sameinast löndin. Þannig sigrar konan manninn með blíðu, það er að segja með því að láta undan. Þess vegna verður stórt ríki að sýna lítillæti til þess að ávinna sér hylli smáríkjanna, og lítið ríki verður að hliðra til við hin stærri, til að fá þau á sitt band. Undanlátssemi veitir þannig bæði vinfengi og liðveizlu. Stórt ríki vill sameina og vernda, lítið ríki vill þjóna og óskar aðstoðar. Hvort um sig fær óskum sínum fullnægt, ef stóra ríkið sínir lítillæti."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1