Icelandic
Gnægð hinns góða
"Alvaldið lætur sér annt um alla hluti. Það auðgar huga góðra manna og leysir vonda menn frá hinu illa. Góð orð afla mönnum hylli, góð breytni hefur enn meiri áhrif. Jafnvel vondir menn eru ekki yfirgefnir. Þegar keisarinn situr á veldisstóli sínum og velur sér ráðgjafa, kemst sá, sem gengur fram fyrir hann með sveit manna og skrautlegt tignarmerki, ekki til jafns við hinn, sem gengur fram í hógværð Alvaldsins. Hvers vegna höfðu fornmenn Alvaldið í svo miklum metum? Var það ekki vegna þess, að unnt var að öðlast það með leit og verða fyrir það án saka? Þess vegna var það metið mest af öllu."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1