Icelandic

Alvaldið jafnar

"Alvaldið himneska starfar á líkan hátt, sem menn benda boga. Það lækkar það, sem hátt er, og hækkar það, sem lágt er. Það tekur þar af, sem of mikið er fyrir, og bætir þar við, sem á vantar. Það er Vegur himanna, að jafna ofgnótt og skort. Þannig er ekki vegur mannanna; þeir taka frá þeim, sem hafa ekki nóg, til þess að auka ofgnótt sjálfra sín. Hver mun taka ofgnótt sjálfs sín og miðla henni til gagns öllum heimi? Aðeins þeir, sem fylgja Alvaldinu. Þess vegna starfar hinn vitri, en krefst einskis handa sjálfum sér; hann framkvæmir sín góðu verk, en telur sér það ekki til gildis. Hann óskar ekki að sýnast öðrum fremri."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1
Loading…
Loading the web debug toolbar…
Attempt #