Icelandic
Fornir vitringar
"Hinir fornu vitringar höfðu hvassan andlegan skilning á leyndardómi tilverunnar, svo djúpan, að menn gera sér ekki grein fyrir því. Þess vegna vil ég reyna að lýsa þeim. Þeir voru aðgætnir, eins og sá sem fer yfir vatnsfall að vetrarlagi; óframfærni, eins og sá sem vantreystir náunga sínum; varhuga, sem gestur meðal ókunnugra; hörfandi eins og snjór í sólbráði; einfaldir, sem óunninn viður. Þeir voru lágir, eins og dalur, og ógagnsæir, eins og gruggugt vatn. Gruggugt vatn verður tært, þegar það er í kyrrð. Getur ekki lífið aftur látið á sér bæra, þar sem kyrrð er og friður? Þeir, sem fylgja Alvaldinu á þennan hátt, hirða ekki um nægtir og mega þess vegna við því að virðast úreltir og lítils háttar."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1