Icelandic
Ólík viðhorf
"Þegar vitur maður heyrir um Alvaldið, tekur hann sér alvarlega fyrir hendur að breyta eftir því. Þegar meðalmaðurinn heyrir frá því sagt, fylgir hann því um stundarsakir, en hverfur síðan frá því. Þegar heimskinginn heyrir um það, hlær hann. Ef honum fyndist það ekki hlægilegt, gæti það ekki með réttu kallazt Vegur eilífðarinnar. Þess vegna segir hið fornkveðna: "Sá, sem býr í ljóma Alvaldsins, hverfur í dimmu. "Á Vegi eilífðarinnar virðist hann vera á afturför, "og sú leið er eins og torfærir troðningar. "Hin æðsta dyggð liggur djúpt, sem dalur, "og fegurðin mesta er sem ofbirta í augun. "Sá er auðugastur, sem ánægður er með lítið; "einlæg dyggð er álitin sérvizka "og stöðugleikur hennar hverflyndi. "Hinn víðasti reitur hefur engar hliðar, "og stærsta kerið er lengst í smíðum. "Enginn hefur heyrt hina hæstu tóna. "Hið stærsta er formlaust — skuggi skuggans. Alvaldið er hulið, og ekkert nafn hæfir því, en það er máttugt í örlæti sínu, svo að allt megi fullkomnast."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1