Icelandic
Að gæta smámunanna
"Því er auðvelt að halda, sem kyrrt er. Auðvelt er að koma í veg fyrir það, sem hefur ekki enn látið á sér bæra. Stökkum hlutum er hætt við að brotna. Smámunir fara hæglega út um þúfur. Leystu störf þín af hendi, áður en þau safnast fyrir. Komdu á reglu, áður en allt er komið á ringulreið. Stærstu trén eru vaxin upp af litlum kvisti. Turn með níu loftum rís af lágum grundvelli. Margra mílna ferð byrjar á einu skrefi. Sá, sem stritar, veldur skaða. Sá, sem lætur greipar sópa, verður að sleppa tökum. Vitur maður er laus við strit og verður því ekki að sleppa tökum. Flestu fólki bregðast áformin, þegar þeim er því nær að lokið. Ef þeir væru jafn-gætnir síðast sem fyrst, mundi þeim ekki misheppnast þannig. Þess vegna eru þráir hins vitra ekki hinar sömu og annarra manna, og torgætir hlutir þykja honum ekki eftirsóknarverðir. Hann lætur það, sem aðrir menn læra ekki, og hverfur að því, sem fjöldinn gengur fram hjá. Þannig styður hann að eðlilegum þroska alls og er þó laus við strit."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1