Icelandic
Manngildi og siðir
"Hin æðri dyggð ljómar ekki, og er ágæti hennar. Hin óæðri dyggð hreykir sér og er þess vegna lítils verð. Hin æðri dyggð starfar ósjálfrátt og þarf ekki að halda sér á lofti. Hin óæðri dyggð sér sinn hag og vill láta á sér bera. Hin æðri ástúð starfar og er ósérplægin. Réttlætið starfar, en sér einnig sinn hag, þótt það sé göfugt. Siðir og venjur færast mikið í fang, en eru sífellt á stjái og ryðja sér til rúms með ofbeldi, ef þeim er ekki viðtaka veitt. Þess vegna er ekki unnt að draga dul á, að þegar Alvaldið hverfur, kemur dyggðin í ljós; þegar dyggðin er horfin, er ástúðin eftir; þegar ástúðin missist, kemur réttlætið til sögunnar; þegar réttlætið er farið veg allrar veraldar, setjast siðir og venjur að völdum. Siðir og venjur eru aðeins skugginn af sannri sæmd og eru undanfari óeirða. Grunnfærnin eltir vafurlogann og er upphaf heimsku. Sannarlegt mikilmenni reisir á traustum grundvelli og fer ekki eftir yfirborðsgljáa. Hann hirðir ávöxtinn, en ekki blómið. Hann fleygir hisminu, en hirðir kjarnann."
0
votes
Author
Lao TzuBook
Dao de jing
Version: 1