Icelandic

Öðruvísi en hinir

"Slepptu lærdómi þínum, og þú munt verða laus við áhyggjur. Munurinn á líkum og vissu er ekki mikill. En hyldýpi er á milli góðs og ills. Það, sem menn óttast, mótar hug þeirra, og þeir munu löngum vera í myrkri. Fólk unir sér við gleði og glaum, eins og þegar haldin er fórnarhátíð eða menn litast um úr háum turni á vordegi. Ég einn er hljóður, og engin löngun hreyfir sér hjá mér. Ég er eins og lítið barn, sem er ekki farið að brosa. Ég er einmanna og yfirgefinn, eins og ég ætti hvergi heima. Almenningur hefur gnægðir góðra hluta, en ég einn virðist fara alls á mis. Ég er sem fáránlingur, frá sér numinn. Aðrir menn ljóma af hyggindum; á mig einan ber skugga. Þeir hafa ærna dómgreind; ég einn er heimskur. Ég sem borinn af bylgjum hafsins og virðist hvergi eiga búna hvíld. Allir aðrir hafa eitthvað að starfa; ég einn er duglaus og klaufalegur. Ég einn er öðruvísi en hinir, en ég heiðra hina nærandi móður allra hluta."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1