Icelandic

Jarðarför og stríð

"Vopn eru upphaf ógæfu, hversu skrautleg sem þau eru. Þau vekja óbeit allra. Þess vegna vill vitur maður ekki vera vopn. Í friði er virðingarsætið til vinstri handar, en í stríði er hægra megin. Vopn eru verkfæri ógæfunnar, og vitur maður maður beitir þeim aðeins ef brýna nauðsyn ber til. Hann þráir friðinn og hefur enga löngun til að sigra í stríði. Því að þá hefði hann gaman af manndrápum. Og sá, sem hefur ánægju af manndrápum, er ekki vel til þess fallinn að stjórna ríkinu. Í friði og fagnaði er tignarsætið á vinstri hönd, en hægra megin þegar sorg er á ferðum. Undirforingjanum ber að vera á vinstri hlið, en yfirforinginn á að vera til hægri handar. Þetta skipulag er hið sama og við jarðarfarir. Sá ætti að vera hryggur og harmþrunginn, sem vegið hefur að mörgum mönnum. Í sigursælum hernaði er sætum þess vegna skipað á sama hátt og við jarðarför."
0 votes

Author

Lao Tzu

Book

Dao de jing
Version: 1
Loading…
Loading the web debug toolbar…
Attempt #